Gleðilegt nýtt ár!

Gleðilegt nýtt ár, kæru vinir og takk fyrir öll gömlu árin.  Vona að allir hafi haft það gott yfir jólin og áramótin.  Nú er ég loksins búin að setja inn myndir sem ég tók á Lækjarbrekku eftir jarðarför hennar Geiru okkar.  Athugið bara að myndirnar eru 7 þó þær birtist ekki allar í yfirlitinu. Sorry, veit ekki hversu bloggvön þið eruð en miðað við hversu lítið er skrifað hér þá er ég farin að halda að mikið vanti uppá bloggkunnáttu okkar Errm En þá er bara að leita til barnanna okkar Smile  Verið nú duglega að skrifa og gefa komment, af hverju haldið þið annars að Ragnar Torfi hafi stofnað þessa síðu?

En kíkið á myndirnar, ég setti nöfnin við þær..... svona ef einhver skyldi ekki átta sig á mannskapnum Grin

bestu kveðjur,  Rósa


Myndin frá útskriftinni

Heil og sæl!

Ég datt niður á myndina af útskriftinni þegar ég var að flytja fyrir tveimur árum.  Skannaði hana inn og ætlaði að hafa með í Borgarnes, en því miður gat ég ekki komist þangað.  Datt í hug að henda henni hér inn.

Augljóslega er þetta vígalegur hópur, en óskup eru allir unglegir! Stelpurnar allar í þjóðbúningi, en grátt og mórautt hefur augljóslega verið í tísku í jakkafötum.

Kveðja frá Eyjum

Jónatan G. Jónsson.


Að lokinni útför Geiru

Það var gott að hittast á Lækjarbrekku í gær eftir útför Geiru.  Gott var líka að fá kveðju frá þeim sem komust ekki.  Það er ljóst að við getum alveg hist án mikils fyrirvara og án þess að hafa mikið fyrir því.  Tæplega tveggja tíma samvera með kaffi, kökum, sögum og spjalli gerir mikið.

Útför Geiru var einstök upplifun.  Hver annar hefði getað skipulagt sína eigin athöfn svona vel og gert hana svona óvenjulega?   Ég trúi alveg séra Hirti Magna þegar hann segist ekki hafa kynnst svona undirbúningi áður, á 20 ára starfsferli sínum. 

Ég hafði fengið úthlutað smá verkefni, sem var að koma saman tónlistinni til flutnings.  Geira skildi eftir lagalista svo þetta var ekki ósvipað og vera sendur út í búð af mömmu í gamla daga með lista.  Svo var þetta spurning um að raða saman í rétta röð og réttan hljómstyrk því lögin voru mis há að grunni til.  Helst var langa lagið Den Signede Dag eitthvað að valda áhyggjum, þetta háværa gítarsóló og tíminn rúmlega fimm og hálf mínúta.  En ég verð að segja að ekki hefði mátt sleppa Den Signede Dag og alls ekki stytta.  Lagið sem Geira söng svona vel var ég búinn að spila í tölvunni minni alla vikuna, en þegar það hljómaði í athöfninni var ekki hægt að halda aftur af tárunum. 

Ég ætla að brenna lagalistann á diska og senda þeim sem vilja.  Mig langar að eiga þetta til minja og veit að það vilja fleiri. 

Þegar ég er búinn að læra meira á þetta blog kerfi ætla ég að setja inn uppfærðan nafnalistan með netföngum.  Jafnframt sendi ég ykkur öllum aðganginn að síðunni og má þá hver og einn bæta inn því sem hann lystir, sögum, myndum og fleiru. 

Frásagnir úr hversdagslífinu eru vel þegnar.  Við erum ekki alltaf að sigra heiminn. 

rato


Hermikrákur

Það var þá kominn tími til að blogga!

Árgangurinn á eftir okkur ákvað halda upp á aldarfjórðungsútskriftarafmælið sitt núna um helgina (28. - 29. apríl).  Sem hluta af undirbúningi settu þau upp bloggsíðuna svs1982.blog.is og söfnuðu þar saman eftirvæntingarsögum, myndum og grobbi.

Því var sjálfgefið að við ættum þessa slóð.

Ef við nennum getum við gubbað fyrir og eftir myndum hérna inn, grobbsögum og slúðri.

Til hamingju með 26 árin í gær.  4 ár í næsta reglulega hitting.

rato.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband