Að lokinni útför Geiru

Það var gott að hittast á Lækjarbrekku í gær eftir útför Geiru.  Gott var líka að fá kveðju frá þeim sem komust ekki.  Það er ljóst að við getum alveg hist án mikils fyrirvara og án þess að hafa mikið fyrir því.  Tæplega tveggja tíma samvera með kaffi, kökum, sögum og spjalli gerir mikið.

Útför Geiru var einstök upplifun.  Hver annar hefði getað skipulagt sína eigin athöfn svona vel og gert hana svona óvenjulega?   Ég trúi alveg séra Hirti Magna þegar hann segist ekki hafa kynnst svona undirbúningi áður, á 20 ára starfsferli sínum. 

Ég hafði fengið úthlutað smá verkefni, sem var að koma saman tónlistinni til flutnings.  Geira skildi eftir lagalista svo þetta var ekki ósvipað og vera sendur út í búð af mömmu í gamla daga með lista.  Svo var þetta spurning um að raða saman í rétta röð og réttan hljómstyrk því lögin voru mis há að grunni til.  Helst var langa lagið Den Signede Dag eitthvað að valda áhyggjum, þetta háværa gítarsóló og tíminn rúmlega fimm og hálf mínúta.  En ég verð að segja að ekki hefði mátt sleppa Den Signede Dag og alls ekki stytta.  Lagið sem Geira söng svona vel var ég búinn að spila í tölvunni minni alla vikuna, en þegar það hljómaði í athöfninni var ekki hægt að halda aftur af tárunum. 

Ég ætla að brenna lagalistann á diska og senda þeim sem vilja.  Mig langar að eiga þetta til minja og veit að það vilja fleiri. 

Þegar ég er búinn að læra meira á þetta blog kerfi ætla ég að setja inn uppfærðan nafnalistan með netföngum.  Jafnframt sendi ég ykkur öllum aðganginn að síðunni og má þá hver og einn bæta inn því sem hann lystir, sögum, myndum og fleiru. 

Frásagnir úr hversdagslífinu eru vel þegnar.  Við erum ekki alltaf að sigra heiminn. 

rato


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sammó 1981

Halló öll. Því miður komst ég ekki í jarðaförina.  Ég hafði kveikt á kerti heima hjá mér daginn sem ég frétti andlátið. ´

Annars allt gott að frétta af mér. Ég er útlærður kennari og starfa í Myllubakkaskóla í Keflavík.

Ég var að skoða myndir á síðunni hjá 1982 árgangnum. Mér brá. Mikið rosalega eru þau orðin gömul.

Kveðja, Gísli Benedikt.

Sammó 1981, 3.11.2007 kl. 17:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband