Heil og sæl!
Ég datt niður á myndina af útskriftinni þegar ég var að flytja fyrir tveimur árum. Skannaði hana inn og ætlaði að hafa með í Borgarnes, en því miður gat ég ekki komist þangað. Datt í hug að henda henni hér inn.
Augljóslega er þetta vígalegur hópur, en óskup eru allir unglegir! Stelpurnar allar í þjóðbúningi, en grátt og mórautt hefur augljóslega verið í tísku í jakkafötum.
Kveðja frá Eyjum
Jónatan G. Jónsson.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | 9.11.2007 | 19:23 (breytt kl. 19:27) | Facebook
Muna
Afmæli á næstunni
14.11 |
Ásta Halla |
45 |
16.11 |
Stefán Logi |
45 |
18.11 |
Þuríður |
44 |
28.11 |
Guðjón |
45 |
03.12 |
Sigurður Ingi |
45 |
14.12 |
Lárentsínus |
44 |
27.12 |
Örn |
48 |
28.12 |
Sigurður Skagfjörð |
44 |
Tenglar
SVS
Aðrir útskriftarárgangar
- Hollvinasamtök Bifrastar Gamlir og þó nokkuð eldri Bifrestingar
- Magnús Guðjónsson (1982)
- Háll sem áll Haraldur Ingólfsson lætur móðan mása
- Árgangur 1982 Liðið við ólum upp í einn vetur
Athugasemdir
Þessi mynd vekur upp minningar Jónatan. Takk fyrir. Ég sé að ég hef ekki nýtt mér hæfni samnemenda í hárklippingum því hausinn á mér lítur út eins og það sitji eitthvað loðdýr á honum.
Ullarföt með vesti voru BOSS þess tíma. Við vorum að fara að leggja undir okkur heiminn gegnum SÍS, strax eftir Daytona! Eins gott að vera klæddir rétt.
Kveðja
rato
Ragnar Torfi (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 11:57
Mér sýnist nú fleiri en þú Ragnar Torfi vera með eitthvað torkennilegt á hausnum.... og vindnæðingurinn hefur ekki verið ykkur strákunum heppilegur
Ég þarf endilega að fá hjálp dætranna við að setja inn myndirnar frá Lækjarbrekku. Þá getið þið dæmt um það hversu vel og fallega við höfum elst
En, takk fyrir síðuna Ragnar Torfi, frábært framtak!
bestu kveðjur, Rósa
Sammó 1981, 12.11.2007 kl. 09:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.